kókosbollan
Myndasíða
28.11.2006 15:10:20 / ragga

pödduát..

Í dag gleypti ég flugu.. í dag hleypti ég út 2 köngulóm.. í dag fékk ég næstum hjartaáfall því ég gleypti flugu og þurfti að díla við köngulær..

djös viðbjóður.. ég fann fyrir flugunni í kokinu á mér.. og reyndi að hósta henni í burtu... en neibb.. þarna var hún pikkföst og vildi hvorki út úr munninum né niðrí maga.. og ég var ekki með neitt til að skola þessari vænu máltíð niður.. þannig að þá var bara farið í það að framleiða drjúkt magn af munnvatni og svo kyngja.. þetta hófst með nokkrum kyngjum...  DJÖS PÖDDUR!!!!!!!!!!!!!!

Svo á morgun er það litun..sjáum hvernig það fer... það er hrikalega dýrt að fara í litun og klippingu hérna.. sjitt.. þetta er bara rugl.. enda ætla ég bara í klippinguna þegar ég kem í heimsókn til Íslands...

En núna eru að koma jól.. jú jú ég er byrjuð að versla aðeins jólagjafir.. en ég hef aldrei verið eins blönk og ég er núna.. djöfull hata ég það..    og ég er ekki komin í mitt árlega jólaskap.. þetta verða ekki svona alvöru jól þetta árið.. það er alveg á hreinu.. en þau verða samt ánægjuleg.. :)  ég er vön að byrja skreyta 1 dec.. kaupa jólagjafir sem ég dýrka.. og pakka inn er bara unaður.. og hlusta á jólalög eins og mér væri borgað fyrir það..  og viti menn ég BAKA líka.... ;)   oh ég vildi að ég væri í þessum fíling.. en ég verð pottþétt í honum á næsta ári.. þá verð ég á mínu heimili og fæ að hafa Auðunn þar.. og verðum svo heima hjá mömmu og co á aðfangadagskvöld.. þannig að það verður bara kúl:)

en mig myndi nú langa að hafa maka með mér sko.. oh hvað er það að vera á lausu.. ég er nú búin að finna draumaprinsinn get ég sagt ykkur.. jaaaá.. en hvað haldiði.. hann er á ÍSLANDI... auðvitað..  ótrúlegt hvað ég er alltaf heppinn.

en annars er ég bara í stuði sko..:haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 13:50:29 / ragga

hamstrafjör..

Hérna er smá til að koma manni úr mánudagsþunglyndinu;) ég sá þetta hérna rosa techno lag á minnsirkus.. eitthvað sem kemur manni alveg í gírinn.. hehehe..

http://minnsirkus.is/userpage/article_view.aspx?user_id=104&article_id=308096

æi fannst þetta bara eitthvað svo fyndið... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 12:12:35 / ragga

jólin koma jólin koma brátt;)

Jæja þá koma Íris og Símon Darri heim á morgun:) Auðunn verður sko ánægður að fá uppáhaldsfrænda sinn hingað og jú uppáhaldsfrænku;) við erum nú samt búin að hafa það voða fínt..en það verður gaman að fá þau mæðgin heim:)

Svo hérna við morgunverðarborðið í morgun.. þá sagði vinurinn allt í einu.. mamma sjöu  búmm búmm.. ég svona.. hvað er alltaf þetta búmm búmm sem þú ert að tala um...bóst (brjóst) og svo sagði hann aftur.. sjöu..(sjáðu) þá var vinurinn búin að setja inn á sig 2 duddur og notaði þær sem brjóst.. svo gekk hann um alla íbúðina svooo stoltur af búmmunum sínum:haha: hehehe.. ég held nú samt að pabbi hans hefði ekki hlegið svona mikið sko.. :haha:

 

En í gærkveldi fórum við mæðgin niðrí bæ...það átti að kveikja á jólaljósunum kl 18 og svo var skrúðganga og svo kom jólasveinninn á svaka flottum rauðum sportbíl:) hehe.. með risasleif í hendinni.. æi þetta var offsalega gaman, gaman að sjá þetta:) það var svoooo mikið af fólki niðrí bæ.. og svo voru búðirnar opnar til kl 24:) þetta var æði: 

svo hittum við Gubbý, Eirík og krúttana 2:) fyndið að við skyldum rekast á hvort annað... því það var troðið þarna... voða mikið gaman að sjá þau öll:) Tristan og Auðunn lentu á smá tjatti.. ji minn þvílíku krúttinn hehehhe.... Óli Karel alveg flottastur með nýju klippinguna sem hann valdi sjálfur.. hanakambur rosa töffari sko;)

svo var farið heim eftir að hafa verið í rúma 2 tíma niðrí bæ.. Auðunn náttleg kreiiiisí.. sjitt.. troðin strætó.. þannig að ég þurfti að hafa hann í kerrunni... hann varð sáttur eftir korter.. þannig að þá var bara korter eftir.... en við vorum þarna niðri með öðru pari með vagn.. og þau voru hrikaleg8|  litli strákurinn þeirra var ekkert að nenna vera í kerrunni... og þau voru svoooo harkaleg við hann.. þá meina ég einum of..:S  þetta stakk mig smá.. og stelpan var nú bara þunglynd eða kreisíí eða eitthvað.. gaurinn mátti ekki hreyfa sig þá heyrði bara í henni hvad for helvede.... og öskraði eitthvað á hann.. greyið Auðunn varð alveg stjarfur og horfði á hana alla leiðina hehehe.. hann allavega þagði..     díses.. vá hvað mér fannst ég heilbrigð eftir þessa strætóferð;) hehe....  sumt fólk sko.. sjitt..

ps. Gotti og Eisi eru að spila á Hressó í kvöld.. ég mæli með þeim.. látið sjá ykkur;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 15:08:35 / ragga

jújú.. þú nennir þessu alveg..;)

Ég held nú að engin eigi eftir nenna svara þessu... en ég ætla nú að gera heiðarlega tilraun;) (sá þetta á síðunni hennar Unu, ákvað að stela þessu;))

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
 

koma svo..;);)


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 18:15:24 / ragga

HELGIN

Þá er þessi helgi búin... og var þetta alveg ágætis helgi...:)  við Auðunn fórum á Fjón til múttu túttu og co.. tókum lest til Odense og svo kom familían að sækja okkur þangað á lestarstöðina:)

við tókum rúnt um Odense og kíktu á íbúðir og svona þarna í kring... jú mér leist alveg vel á þetta.. en vildi nú skoða líka í Ullerslev.. en það er bærinn þeirra og búa þar rúmlega 5000 manns..

júbb.. við brunuðum þangað og stefndum á götu sem heitir Kirsebærhaven  og er mjög svo snyrtileg... þar var raðhús (endaraðhús;)) með fínum garði.. 3ja herbergja og 86 fm.. vá hvað mér leist alveg sérstaklega vel á þetta.. ég væri nálægt leikskólanum.. helstu búðunum og er svona algerlega miðsvæðis... svo er líka svo stutt til Odense og stutt í Nyborg...þannig að ééég.. tók þessari.. FLYT 1 FEBRÚAR:):):) 

líka næs að hafa fjölskylduna svona nálægt mér.. (aaaaalltaf með pössun;);))

Svo tók við heimferðin í dag..lestinni seinkaði um klukkutíma... Auðunn var nú óvenjugóður sem beeeeeetur fer...

svo tók strætóferðin við og ég rétt náði henni.. fjúff hefði ekki nennt að bíða í 30 mín sko;) en það vildi svo heppilega til að Gaui nágranni var þarna:) hann var svo herramannslegur og hjálpaði ungri stúlku í neyð með töskuna og kerruna;)  svo var bara tekið gott spjall í hálftíma.. og Auðunn þvílíkt góður...

vá hvað það var gott að koma heim... og vá hvað mig vantar bíl.. hehe.. þá losnar maður við allt þetta vesen.. bara bruna áfram með gps tækið sitt;)  sweeet...;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 22:23:11 / ragga

mæ só kóld plan;)

Núna er ég einstæð móðir í dk.. fínt!!!! ætla finna aðeins sjálfa mig.. og njóta þess að vera til.. og reyna gera eitthvað einu sinni af viti!!!!

Fer i skóla í ágúst!!! ætla flytja til Odense í des eða jan.. það skýrist mjög bráðlega.. sækja um vinnu þar.. koma stráknum fyrir hjá dagmömmu... og vera ógisslega dugleg í körfuboltanum í janúar.. (er ekki körfuboltalið í Odense??:$ ha Gubbý??) og vá hvað mig langar að læra á hljóðfæri.. hm.. ég kanna það á næsta ári.. langar svo að læra á óbó!! og auðvitað gítar;)  en ég fæ nú minn einkakennara þar;);)

Mig langar að gera svo margt.. mig langar að læra svo mikið.. og viti menn ég er ekkert lærð..oh þannig að ég þarf að byrja á því núna.. alveg komin tími til.. hef aldrei vitað nákl hvað mig hefur langað til að læra.. svo kom það ..Nudd.. barnasálfræði.. og ljósmyndun... svo er bara málið .. hvernig ætla ég að vinna úr þessu..

nuddið get ég tekið hérna.. en skólinn ekki metin heima:S er nú samt að spá í að taka hann... en svo langar mig svo að taka stúdentin hérna á 2 árum... því mig langar í háskólann... þannig að hvort byrja ég á nuddinu eða tek stúdentinn... hm.. alveg er þetta að flækjast fyrir mér... en ljósmyndun ætla ég að læra þegar ég kem bara heim:) fínt hobbí;)

díses er búin að hlusta á stairway to heaven 4 sinnum í röð.. get ekki hætt að hlusta á það... ótrúlega gott lag... tek alltaf æði á það svona öðru hverju.. hehe....

jæja ég er allavega búin að upplýsa ykkur um planið mitt hérna í dk;)

hafið það rosagott..:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 10:37:40 / ragga

fokkings köngulær út um allt...:S

Ohh.. eruði ekki að grínast með þessar endalausu köngulær..8|  ég vissi nú að það væri mikið af þeim hérna.. en VÁ!!! svo var ég að þrífa gluggakistuna inní herbergi.. og viti menn.. komin fokking egg þarna..8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|  svo er ég svo klikkuð að ég get ekki drepið þau.. oh.. svona svo þið kannski skiljið mig.. þá lít ég á þetta svona: ég sé mömmuna passa litlu ungana sína.. og hún er sko alveg yfir þeim.. þeir þarna pínkulitlir innilokaðir í vef.. svona til að verja þá.. svo saklausir litlir ungar.. og mamma svo passasöm á þá.. en svo kem ég og drep allt.. :$

mér finnst þetta svo ljótt eitthvað:S   en jú ég tek þetta;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 17:44:18 / ragga

wtf!!!!!!!!

Hva.. hvurs HAAA!!! ji minn greyið manneskjan8|8|8| 

http://nonk.nonk.info/pages/pool_film.html

æi ég hló nú samt..:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 10:33:43 / ragga

nó djamm for mí

dem sem mig langaði á djammið í gær.. og ég ætlaði nú að fara niðrí bæ EIN en bara til að taka smá rölt og sjá mannlífi;) ég er komin með svo mikið ógeð á að hanga heima að það hálfa væri nóg.. !!!!

en hún Vala nágranni okkar kom í heimsókn í gær og var það í fyrsta skiptið sem ég hitti stúlkuna..:) og við 3 gleymdum okkur í kjaftagangi hérna heima yfir bjórnum okkar... og misstum af strætónum8| þannig að við Vala ákváðum að kíkja á bæjarkránna:haha: við skunduðum af stað um kl 1 og viti menn helvítis kráinn var lokuð:whut: WHAT!!!!! svaka kráinn alveg opin til tólf eða eitthvað... þannig að leiðin lá heim..

En þetta var samt mjöög fínt kvöld:) líka gaman að hafa kynnst Völu aðeins:) en það verður sko tekið gott djamm á þetta bráðlega !!! ekki spurning:)

Það eina sem böggar mig við að fara á djammið niðrí bæ .. er að það er svo erfitt að fá taxa:S og næturstrætóinn er bara til kl 3... og vá hvað það er allt of snemmt að fara heim þá...!!! en kannski maður fari bara að venja sig á að fara um kl 21 niðrí bæ... þá er víst fólk komið í bæinn!!!    ég spá í þessu;)

Annars var dagurinn fínn í gær:) Mamma og co komu í heimsókn og fóru svo með okkur mæðgin á McDonalds.. það var bara fínt:)

svo var nú mamma að bjóðast til að hleypa mér inn á  heimilið.. svona þangað til ég fyndi húsnæði fyrir sjálfa mig og þá mjöög rétt hjá þeim;) hehhehe.. ég spá í þetta:):)

Miklar spáeringar þessa dagana... skóli.. hvar ég vil búa.. bílamál.. og peningamál...  og núna þarf ég að fara taka ákvörðun .. eiginlega bara strax í næstu viku8|   en þetta er bara spennandi:)

jæja... ég vona að sumir séu ekki of þunnir í dag;) hehehehe... ég fékk nú ekki einu sinni færi á því;)

hafið það gott evrívon

tjaaaaaááááá.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 07:35:04 / ragga

dobbul or noþþing...

Keypti mér sæng um daginn.. ætlaði bara að kaupa einhverja plebbasæng.. því ég fæ mína góðu sæng til dk í janúar:) þannig að ég greip bara einhverja í Ikea... leit bara á verðið og jú kom aðeins við;)

aaaallavega... svo þegar ég tók hana upp úr pokanaum.. þá kom í ljós að þetta var tvöföld sæng.. af hverju hef ég aldrei átt tvöfalda sæng!!!!! Hún er æði!!!!!!

bara vaaaaarð að deila þessu með ykkur:haha::haha::haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 22:51:43 / ragga

hvað er næst...?

Núna stend ég í smá vangaveltum... skólinn sem ég hélt að væri metin heima .. ER ÞAÐ EKKI8|   sem þýðir að ég þarf að skoða aðra skóla...  ég sé ekki fram á að fara í skóla aaaalveg strax.. þannig að mig vantar vinnu... ég tala ekki málið.. þannig að þetta verður að vera einhver plebbavinna.. sem er nú alveg í lagi svona fyrst!!!

Ég held að það sé skóli í köben sem er metin svo heima.. en þá þarf ég náttlega að flytja.. sem mig langar ekkert allt of mikið þar sem ég hef það fínt hérna.. og er komin með fína dagmömmu fyrir kútinn minn..  svo fæ ég bíl núna 17 nóv:):):) þannig að þetta er svona allt að fara í gang;)

jámm ég finn út úr þessu;) en það er þvílíkt óþægilegt að vita ekki hvernig þetta verður.. en auðvitað skýrist þetta allt saman:) en kútnum mínum líður vel og það er fyrir mestu:)

Íbúðin sem ég átti mjög líklega að fá í janúar er farin:/ en það er kannski ágætt þar sem ég veit ekki alveg hvar ég vil búa..

þannig að þið sem ætluðuð að heimsækja mig í jan.. verða að fresta því aðeins svoooo  því miður..:S

En ég er samt þvílíkt ánægð að vera hérna.. mér líkar þetta vel og finnst þetta mjög svo spennandi og eitthvað sem ég verð að gera...  en ég sakna þín endalaust mikið:(

En ég finn samt hvað Ísland er best.. en auðvitað á maður að prufa eitthvað annað en bara Ísland.. mér finnst svo nauðsynlegt að prufa búa einhversstaðar annarsstaðar.. bara svona smá lífsreynsla og ævintýri:)

kveð í bili... kem vonandi með góðar fréttir bráðum;)

tjaaaaaaááááá.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 17:35:11 / ragga

mæ först djamm in dk

Í gær var farið á skrallið.. og jú hrunið allverulega í það.. sjitt... þessi mynd hérna fyrir neðan lýsir ástandinu um kvöldið..

 

16 okt 061

16 okt 062

sæt ha.. þarna var ég í ljótudansi.. svona aðeins til að heilla strákana...:haha::haha:

Við fórum á XL til að byrja með sem er karokkí staður;) við stoppuðum nú ekki lengi þar.. en það var samt mjög gaman og sé ég alveg fram á að fara þangað aftur og taka eitt og jafnvel 2 lög. (þetta er nú svið.. fer nú ekki að klikka hérna í dk;))

Svo kom Gretar og Maríanna:) og ákváðum við að fara á Broen.. þar er skip notað sem diskó ... og sjitt hvað ég var að fíla tónlistina og dansaði af mér rassinn svei mér þá.. ég á nú mynd af mér dansa en held ég setji hana ekkert inn ... hehehehe..

En á myndinni hérna fyrir neðan erum ég og Íris á leið niðrí bæ..og vá hvað við gátum misst okkur úr hlátri við þessum villandi skilaboðum hvað varðar hvað má ekki neyta í strætó.. þar var jú flaska og strik yfir hana... um hvaða drykk er verið að ræða??? ha... við tókum sem þetta væri kók.. þannig að við opnuðum bara bjórinn.. svo var mynd af 2 pulsum.. þá ætti nú að vera í lagi að vera með eina ef ekki 3... svo var mynd af íspinna.. þá ætti nú að vera í lagi að vera með ístopp..!!!!!  maður þarf kannski að vera vel í því til að finnast þetta fyndið:haha: eða bara að vera við heheheheehe....

16 okt 057

en ég vissi ekki að strætóbílstjórar væri svona næs í dk.. því allt í einu stoppaði strætóinn við enga stoppistöð og 2 stelpur þutu út...dúbbírúú.. við biðum... jájá þetta var bara svona pissustopp:D frekar fyndið hehehehe..

Hérna eru Gretar og Maríanna:)

16 okt 066

og eru þau nýju bestu vinir mínir sem ég ætla hitta á hverjum degi.. því Gretar er að læra kokkinn.. þannig að þau geta alltaf búist við mér heim til sín á sama tíma alla daga!!!!:haha:

En já þetta kvöld var æðislegt....það var mikið dansað og svitnað.. mmm girnó.. 

Eeeeeeeeen...... svo hringdi Íris á taxa...:S sjitt við biðum í næstum 2 tíma í svoooo miklum kulda.. vá hvað okkur var kalt.. aldrei kom taxinn.. Íris hringdi og hringdi... en ekkert gerðist...

Þetta endaði með því að við tókum svokallaðan sjóræningjataxa.... annars hefðum við ekki komist heim fyrr en strætóinn myndi byrja ganga:S ég verð nú að viðurkenna að ég var smá smeik.. en þetta sem betur fer reddaðist...

svo var komið heim og beint í sturtu... svo að sofa.. ég náði held ég 3 tímum svo bara RÆS.. fór bara inn í stofu og kúrði þar með Auðunni... en mér var ennþá kalt .. og Írisi líka... við urðum svo kaldar í gegn að það tók marga tíma að ná sér:S

Þannig að næst þegar ég fer á djammið þá ætla ég að ná næturstrætó... og fara bara heim fyrr af djamminu.. ekki spurning...

En þetta var alveg þess virði því þetta kvöld var geggjað:):):):)


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 16:12:47 / ragga

spiderwoman..

Það er búið að rigna síðan ég kom.. og það er búið að vera mikið rok... af hverju ætti ekki að snjóa líka....  ég vaknaði í morgun á mjög svo ókristilegum tíma þar sem sonur minn er farin að vakna allt of snemma:S (6:30)  þá var snjókoma og rok úti:S oj.. 

En það er könguló inn á baði hjá okkur.. og létum við hana í friði.. (þar sem ég þori engan vegin að taka hana.. og ég held að Íris sé að pína mig með þvi að taka hana ekki;))  hún er búin að vera þarna í nokkra daga.. og hvað haldiði.. það eru komin egg8| oj... en hún er svo móðurleg eitthvað er alveg yfir þeim greyið og við viljum ekki drepa eggin... en við viljum nú engan vegin fá heila fjölskyldu hingað inn8|8|   hm...   ´

þó svo að ég HATI þessi kvikindi... þá hef ég það aldrei í mér að drepa þær.. nema þær kveljist.. (mar er svo góður í sér;))

 

Svo verður kannski farið niðrí bæ um helgina:) og verð ég nú að segja að ég hlakki smá til.. er búin að vera svoldið innilokuð:S en það náttlega fer að breytast þar sem Auðunn byrjar 6 nóv hjá dagmömmu:) vá hvað það verður gott fyrir hann... ég hlakka líka til að sjá hvernig hann aktar, því ekki mun barnið skilja mikið.. en þetta er fljótt að koma hjá svona ormum;)

Svo var Gubbý að segja mér að ég hefði farið á dýrustu líkamsræktarstöðina hérna í Aarhus..8|  þetta eru svona Laugar dk;)  en hún var að segja mér að það eru yfirleitt aldrei sturtur á líkamsræktarstöðvum hérna.. en á minni líkamsræktarstöð eru sturtur og alle græj;)  en ég held ég skipti nú um stöð bráðlega.. hehe.. það er fáránlegur verðmunur sko.. en ég vissi það ekki... fyrr en aðeins of seint;) sem betur fer keypti ég bara 2 mánuði;)

Jæja þá er mar búin að fara úr einu í annað.. hehe..

hafið það gott þarna þið..

bææææææææjó....


» 7 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 67268
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti