Gotti minn kom heim síðasta laugardag frá Bandaríkjunum....
ohh það var svo gott að fá hann..... hann lenti kl 06:30 og
fórum við Auðunn Berg að sækja hann

reyndar fékk
Gotti greyið bara að sofa til kl 11... já já drengurinn
bara búin að vaka í siljón tíma....

ég þurfti að
fara vinna á sýningunni í Fífunni... ótrúlega næs
kærasti sem ég á. Helgin var bara nokkuð róleg
og næs... var bara klínd við hann hehehe...
núna er sunnudagurinn 13 apríl.. og Gotti er
farin enn og aftur út... úff.. ég er alveg með
saknaðarsting núna.. hann verður burtu í
aðra viku.. kemur á sama tíma og síðast.
. ss kl 06:30 á laugardagsmorgun.. strax
farin að hlakka til

svo þegar þessi vika
er búin... þá er bara ein vinnuvika eftir
erlendis.. svo er þetta búið


Núna á föstudaginn ætluðum við
að fara út að borða.... en Gotti
veiktist svo... hiti og læti..
þannig að við tókum því
bara rólega og tókum dvd
og keyptum fullt af nammi..
á laugardeginum.. fór ég í smáralindina og vildi eiga svona smá alone time..
eitthvað lítil í mér... passa í engin föt... og á engin föt.. alltaf aðeins of "feit"
bara ekki alveg nógu sátt við útlitið þessa dagana.... þannig að ég ákvað að
kaupa mér kjól.. svona sem ég get verið í í vinnuni og bara svona dagsdaglega...
fór í nokkrar verslanir.. og fór bara næstum því að gráta í búningsklefanum því ég passaði ekki í stærð 8.. og þurfti að biðja um stærra..!!! ég held ég hafi aldrei
tárast inn í búningsklefa hehehe.. úff... já baráttan við aukakílóin eru ekki
skemmtileg... á meðan ég var í grátkasti á búðarrölti... var Gotti með Kristjáni..
svona feðgastund

Kristjáni fannst það sko EKKI leiðinlegt..

að fá pabba sinn
alveg út af fyrir sig í nokkra tíma....

ég fór svo heim.. setti stardust í dvd
spilarann.. fékk mér nammi og vatn... og horfði á hálfa myndina.. varð svo
syfjuð og sofnaði fyrir framan imbann.... Gotti kom svo heim.. vildi ekki vekja
mig... en þegar ég vaknaði beið mín faðm, koss, blómvöndur... kort og bók
um ástina... er mig að dreyma.. þessi drengur er ótrúlegur....
Svo um kvöldið bauð Gotti mér út að borða, við fórum á Caruso, snilldarmatur
þar.. mmmmm.... fengum okkur eina flösku af hvítvíni og nákl sama mat og við fengum
síðast

hann var bara svo góður.. þannig að við
létum freistast á það sama aftur hehehehe.. svo fórum
við á Gullfoss fengum okkur
kokteil og gin og tónik... kjöftuðum og ætluðum svo
að hitta Binnu og Skarpa á Apotekinu.... já einmitt.. eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee
eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee
eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee
eeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeee
eeeeeendalaus röð ... úff. og íískalt úti... þannig að við
ákváðum að fara bara heim.. enda mjööög sátt með kvöldið...
rólegt og rómatískt

hérna eru myndir áður en við fórum út




langflottust